Fotbolti.net
24.05.06 - 18:53
Stefán Guðberg Sigurjónsson

David Sommeil til Sheffield United (Staðfest)

Fer til Sheffield United í sumar

Fer til Sheffield United í sumar

Canon

Mynd: Getty Images

Franski varnarmaðurinn David Sommeil gekk í dag í raðir Sheffield United frá Manchester City. Sommeil sem er 31. árs gamall kostaði Sheffield ekki krónu og skrifaði hann undir tveggja ára samning við liðið.
,,Ég er ánægður að hafa skrifað undir og er hrifinn af því sem ég hef séð hjá Sheffield United og framkvæmdarstjóranum Neil Warnock. Ég er ákveðinn að vera áfram í Englandi af því að Úrvalsdeildin er besta deildin í Evrópu. Ég átti möguleika að skrifa undir hjá öðru liði en ég fór til United af því að mér líka við stuðningsmennina og aðstæður," sagði Sommeil.

Það var Kevin Keegan sem keypti Sommeil frá Bordeaux í janúar 2003 fyrir 3,4 milljónir punda en hann spilaði aðeins sautján leiki fyrir City á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.