Fotbolti.net
24.05.07 - 19:34
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Marcell Jansen til Bayern Munchen (Staðfest)

Marcell Jansen

Marcell Jansen

Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Marcell Jansen hefur gengið til liðs við Bayern Munchen. Þessu greindi þýska stórveldið frá í dag.
Jansen, sem hefur spilað 14 leiki fyrir þýska landsliðið, mun koma frá Borussia Monchengladbach eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð, sem er ekki gefið fram.

Bayern Munchen hefur lofað mikilli uppbyggingu eftir liðinu tókst ekki að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Þessi 21 árs gamli leikmaður eru fjórðu kaup Bayern á þessu tímabili en þeir hafa einnig fengið til sín Hamit Altintop, Jan Schlaudraff og Jose Ernesto Sosa.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.