Fotbolti.net
24.05.21 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fékk seinna gula spjaldið fyrir dýfu - Húsvíkingar ekki sáttir

Auglýsing
Úr leik Völsungs og Hauka á síðustu leiktíð.

Úr leik Völsungs og Hauka á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Haukar og Völsungur áttust við í fótboltaleik síðasta föstudag sem var gríðarlega skemmtilegur fyrir hlutlausa aðdáendur.
Gestirnir frá Húsavík mættu í leikinn af miklum krafti og þeir fóru inn í leikhléið 2-0 yfir.

Santiago Feuillassier Abalo, sem skoraði frábært mark í fyrri hálfleik, fékk að líta sitt annað gula spjald snemma í seinni hálfleik og Völsungar einum færri. Haukar minnkuðu muninn en svo skoraði Sæþór Olgeirsson frábært mark og kom gestunum í 3-1. Haukar gáfust hins vegar ekki upp og náðu að jafna. Þeir náðu þó ekki að vinna og lokatölur 3-3.

Rauða spjaldið snemma í seinni hálfleik hafði mikil áhrif á leikinn en Santiago fékk seinna gula spjald sitt fyrir meintan leikaraskap.

Hér að ofan má sjá myndband af seinna gula spjaldinu sem Santiago fékk. Það gerði Húsvíkinga ekki glaða.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.