Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. maí 2022 00:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stal verðlaunapening Pioli og þakkaði fyrir sig á Instagram
Mynd: Getty Images

Stefano Pioli, þjálfari AC Milan, týndi verðlaunapeningnum fyrir Ítalíumeistaratitilinn eftir verðlaunaafhendinguna.


Pioli var rændur af ungum stuðningsmönnum Milan sem birtu myndband af sér með verðlaunapeninginn og þökkuðu Pioli fyrir á Instagram.

„Það var rænt verðlaunapeningnum í fagnaðarlátunum. Ég bið ykkur um að hjálpa mér að hafa uppi á honum aftur því hann skiptir mig miklu máli," sagði Pioli eftir stuldinn en tíst frá Twitter aðgangi Serie A fullvissaði þjálfarann um að hann gæti fengið nýjan án vandræða.

Pioli var kominn með verðlaunapeninginn fyrir rútufögnuðinn sem átti sér stað í dag, þar sem þjálfari og leikmenn fögnuðu titlinum langþráða saman í opinni rútu sem keyrði um Mílanóborg.

Hér fyrir neðan má sjá strákana þakka Pioli fyrir verðlaunapeninginn og enn neðar má sjá Zlatan Ibrahimovic hvetja stuðningsmenn Milan til að senda Hakan Calhanoglu hlýjar kveðjur. Calhanoglu skipti úr Milan til erkifjendanna í Inter á frjálsri sölu síðasta sumar og er hataður af stuðningsmönnum AC.


Athugasemdir
banner
banner
banner