Framtíð argentínska sóknartengiliðsins Nico Paz er óljós þar sem hann er að ljúka sínu öðru tímabili hjá Como í ítalska boltanum.
Como keypti Paz úr röðum Real Madrid en spænska stórveldið hélt sérstöku endurkaupsákvæði og getur því keypt leikmanninn aftur til sín fyrir svo lítið sem 9 milljónir evra. Real hefur aðeins síðustu vikuna í maí til að nýta ákvæðið áður en það fellur úr gildi þar til á næstu leiktíð.
Real getur svo borgað 10 milljónir evra til að kaupa Nico Paz fyrir 31. maí 2027.
Paz er metinn á rúmar 70 milljónir og því hafa fjölmiðlar verið með getgátur um að Real Madrid muni kaupa leikmanninn til baka til þess eins að selja hann aftur.
Real Madrid er þó einnig með endursöluákvæði sem þýðir að félagið fær 50% af heildarupphæð á næstu sölu leikmannsins.
Cesc Fábregas þjálfari Como útilokar að Paz verði seldur annað heldur en til Real í sumar, en leikmaðurinn er með tvö ár eftir af samningi.
„Nico Paz fer ekki til Inter eða annars félags í sumar. Hann mun spila fyrir Como eða Real Madrid, það kemur ekkert annað til greina. Ég get fullyrt það. Við eigum meiri virðingu skilið frá fjömiðlum," segir Fábregas.
11.05.2026 06:00
„Viljum halda Nico Paz í eitt ár í viðbót"



