Fotbolti.net
11.05.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

„Viljum halda Nico Paz í eitt ár í viðbót"

Nico Paz er 21 árs gamall og með tvö ár eftir af samningi við Como. Frábær frammistaða hans í ítalska boltanum skilaði honum sæti í argentínska landsliðshópnum og mun hann fara með til að hjálpa Argentínu að verja heimsmeistaratitilinn ef hann lendir ekki í meiðslum.

Nico Paz er 21 árs gamall og með tvö ár eftir af samningi við Como. Frábær frammistaða hans í ítalska boltanum skilaði honum sæti í argentínska landsliðshópnum og mun hann fara með til að hjálpa Argentínu að verja heimsmeistaratitilinn ef hann lendir ekki í meiðslum.

Canon

Mynd: EPA

Argentínski sóknartengiliðurinn Nico Paz hefur verið í feykistuði með Como á tímabilinu. Hann er algjör lykilmaður í uppgangi Como með 12 mörk og 6 stoðsendingar í 35 deildarleikjum.
Real Madrid er með endurkaupsrétt á leikmanninum sem nemur aðeins um 9 milljónum evra en Nico Paz er talinn vera um 60 milljóna virði í fótboltaheiminum í dag. Það þykir því afar líklegt að Real muni kaupa hann aftur til sín.

Como vill þó reyna að semja við Real um að halda Nico Paz í ítalska boltanum í eitt ár í viðbót. Stjórnendur Como færa rök fyrir því að Paz myndi fá talsvert meiri spiltíma á Ítalíu heldur en með Real Madrid og öðlast mikilvæga reynslu í Evrópu.

Como vill semja um að Real Madrid haldi endurkaupsréttinum sínum þar til sumarið 2027 en stjórnendur eru einnig opnir fyrir því að Real Madrid kaupi leikmanninn og láni hann svo til Como.

„Við munum gera allt í okkar valdi til að halda Nico Paz áfram hjá félaginu í eitt ár í viðbót," segir Carlalberto Ludi, yfirmaður fótboltamála hjá Como.

Hafa mánuð til að virkja ákvæðið
TENGT EFNI

Hafa mánuð til að virkja ákvæðið

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.