Fotbolti.net
24.05.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Eftirsóttur Éderson með Man Utd í forgangi

Eftirsóttur Éderson með Man Utd í forgangi
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Éderson er eftirsóttur í sumar en hann hefur sett félagaskipti til Manchester United í forgang.
Atalanta er reiðubúið til að selja hann fyrir 55 milljónir evra og er félagið í viðræðum við Rauðu djöflana um kaupverð.

Staðfesti viðræður um Ederson - Á leið til Man Utd
TENGT EFNI

Staðfesti viðræður um Ederson - Á leið til Man Utd



Atlético Madrid og Inter hafa verið sterklega orðuð við Éderson en það er einnig áhugi á honum frá Sádi-Arabíu og öðru ónefndu úrvalsdeildarfélagi.

Þrátt fyrir allan þennan áhuga er Brassinn spenntur fyrir verkefninu hjá Man Utd og vill ólmur skipta til félagsins.

Éderson myndi fylla í skarðið sem samlandi hans, hinn reynslumikli Casemiro, skilur eftir á miðsvæðinu. Éderson yrði þá á miðjunni með Kobbie Mainoo en Man Utd er einnig talið vera í leit að öðrum miðjumanni.

Ítalinn Sandro Tonali hjá Newcastle er sterklega orðaður við Man Utd þessa dagana.

Man Utd að ganga frá kaupum á Tonali
TENGT EFNI

Man Utd að ganga frá kaupum á Tonali

Eftirsóttur Éderson með Man Utd í forgangi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.