Ederson, miðjumaður Atalanta, kom ekki við sögu þegar Atalanta gerði 1-1 jafntefli gegn Fiorentina í lokaumferð ítölsku deildarinnar í gær.
Sögusagnir hafa verið um að hann sé á leið til Man Utd en Raffaele Palladino, stjóri Atalanta, staðfesti að hann hafi ekki spilað þar sem viðræður við stórlið séu langt komnar.
Talið er að félögin hafi komist að samkomulagi um rúmlega 50 milljón evra kaupverð og hann muni skrifa undir fimm ára samning við enska félagið.
Ederson er 26 ára brasilískur miðjumaður. Hann gekk til liðs við Atalanta frá Salernitana árið 2022. Hann hefur spilað 180 leiki fyrir liðið og skorað 16 mörk.


