Fotbolti.net
24.05.26 - 17:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Liverpool í Meistaradeildina og nýliðarnir í Evrópudeildina

England: Liverpool í Meistaradeildina og nýliðarnir í Evrópudeildina
Canon

Mynd: EPA

Ensku úrvalsdeildinni lauk í dag þar sem baráttunni um síðustu Evrópusætin lauk.

Liverpool var svo gott sem búið að tryggja sér síðasta Meistaradeildarsætið. Liðið hefði þurft að tapa stórt gegn Brenford og Bournemouth þurfti að vinna Nottingham Forest.
Mohamed Salah var í byrjunarliðinu í sínum síðasta leik en hann lagði upp mark Liverpool á Curtis Jones, sem hefur verið orðaður í burtu frá félaginu. Kevin Schade jafnaði hins vegar metin og jafntefli var niðurstaðan.

Salah var tekinn af velli þegar um stundafjorðungur var til loka venjulegs leiktíma og Andy Robertson fór af velli stuttu síða í sínum síðasta leik.

Bournemouth náði aðeins í jafntefli gegn Forest og endar í 6. sæti og fer í Evrópudeildina. 6. sætið hefði getað gefið Meistaradeildarsæti ef Aston Villa hefði tapað gegn Man City en Ollie Watkins skoraði tvennu í seinni hálfleik og tryggði Villa sigurinn eftir að Antoine Semenyo kom City yfir.

Það var tilfinningaþrungin stund á Etihad þar sem Bernardo Silva, John Stones og Pep Guardiola voru að taka þátt í sínum síðasta leik fyrir City.

Nýliðar Sunderland stukku upp úr 10. sæti í það sjöunda með frábærum sigri á Chelsea. Chelsea missti því af Evrópusæti og Sunderland fer í Evrópudeildina. Frábært tímabil hjá nýliðunum.

Brighton tapaði gegn Man Utd þar sem Bruno Fernandes lagði upp 21. markið sitt á tímabilinu. Enginn hefur lagt upp jafn mörg mörk í sögu deildarinnar.

Brighton 0 - 3 Manchester Utd
0-1 Patrick Dorgu ('33 )
0-2 Bryan Mbeumo ('44 )
0-3 Bruno Fernandes ('48 )

Nott. Forest 1 - 1 Bournemouth
1-0 Morgan Gibbs-White ('34 )
1-1 Marcus Tavernier ('54 )

Liverpool 1 - 1 Brentford
1-0 Curtis Jones ('58 )
1-1 Kevin Schade ('64 )

Manchester City 1 - 2 Aston Villa
1-0 Antoine Semenyo ('23 )
1-1 Ollie Watkins ('47 )
1-2 Ollie Watkins ('61 )

Sunderland 2 - 1 Chelsea
1-0 Trai Hume ('25 )
2-0 Malo Gusto ('50 , sjálfsmark)
2-1 Cole Palmer ('56 )
Rautt spjald: Wesley Fofana, Chelsea ('62)
England: Liverpool í Meistaradeildina og nýliðarnir í Evrópudeildina
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.