Fotbolti.net
13.06.26 - 22:22
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópsk félög í forgangi hjá Goretzka

Evrópsk félög í forgangi hjá Goretzka
Canon

Mynd: EPA

Þýski miðjumaðurinn Leon Goretzka er frjáls ferða sinna eftir átta ár hjá risaveldi FC Bayern.
Goretzka er samningslaus og er staddur með þýska landsliðinu á HM þessa stundina. Hann er 31 árs gamall og hefur meðal annars verið orðaður við AC Milan og Juventus á Ítalíu.

Það er einnig áhugi á honum úr ensku úrvalsdeildinni, Sádi-Arabíu og Bandaríkjunum.

Nokkur bandarísk félög hafa sett sig í samband við umboðsteymi Goretzka en leikmaðurinn vill spila áfram á hæsta gæðastigi og ætlar því að vera áfram í Evrópu þrátt fyrir magnaða tekjumöguleika í öðrum heimsálfum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.