Þórður Inga: Þetta var frekar \"soft\"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Þetta er gott stig, samt er þetta svekkjandi þar sem við vorum með vinningsstöðu þangað til þeir skoruðu á 82. mínútu úr frekar \"soft\" víti fannst mér,\"</i> sagði Þórður Ingason, markvörður Fjölnis, eftir 1-1 jafntefli gegn toppliði Vals í Pepsi-deild karla í dag.
<i>„Þeir pressuðu rosalega á okkur liðið okkar féll aftar og aftar. Við náðum ekki að færa liðið og halda boltanum neitt, þannig að við buðum svolítið upp á þetta.\"</i>
<i>„Þeir pressuðu rosalega á okkur liðið okkar féll aftar og aftar. Við náðum ekki að færa liðið og halda boltanum neitt, þannig að við buðum svolítið upp á þetta.\"</i>
Jöfnunarmark Vals kom út vítaspyrnu. Hvað fannst Þórði um dóminn sem markið kom upp úr?
„Þetta var frekar \"soft\". Annars er ekki mikið við því að segja.\"
„Ég er ekki með dómaragráðu.\"
„Það er gott að fá stig á móti efsta liðinu og það var margt jákvætt í þessum leik. Spilamennskan var kannski ekki góð, en menn voru að berjast fyrir hvorn annan.\"
Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.