Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslenskur strákur markahæstur allra í Noregi
Erik Leandersson.
Erik Leandersson.
Mynd: Spjelkavik IL
Það hefur enginn leikmaður í Noregi skorað fleiri mörk um þessar mundir en Íslendingurinn Erik Leandersson sem spilar með Spjelkavik.

Hann hefur skorað 23 mörk í 15 leikjum á tímabilinu en lið hans spilar í fjórðu efstu deild í Noregi.

Leandersson, sem er 21 árs gamall, hefur spilað með Spjelkavik síðastliðin þrjú ár en áður var hann á mála hjá Brattvag og Álasundi þar sem hann var í varaliðinu.

Leandersson á íslenska móður og norskan föður. Hann hefur áður búið hér á Íslandi og var í úrtakshópum fyrir yngri landsliðin fyrir nokkrum árum. Davíð Snorri Jónasson valdi hann í úrtakshóp fyrir U16 landsliðið árið 2019 en í þeim hóp voru meðal annars líka Anton Logi Lúðvíksson, Kjartan Kári Halldórsson og Óli Valur Ómarsson.

Þessi öflugi leikmaður skráði sig á spjöld sögunnar hjá Spjelkavik í fyrra er hann skoraði sex mörk í einum og sama leiknum. Varð hann fyrsti leikmaður í sögu félagsins til að gera það.


Athugasemdir