Gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aston Villa er í leit að nýjum vinstri bakverði eftir að félagið náði samkomulagi um að selja Lucas Digne til Paris Saint-Germain í Frakklandi.

TENGT EFNI
Digne fer til PSG fyrir lága upphæð
Digne er óvænt á leið aftur heim til Frakklands, en Fabrizio Romano greindi frá samkomulagi um félagaskiptin í dag.
Brottför hans þýðir að Aston Villa þarf að finna nýjan vinstri bakvörð og er Unai Emery, stjóri liðsins, sagður vera með nokkra leikmenn á óskalistanum.
Ekvadorinn Pervis Estupinan er ofarlega á þeim lista. Hann er 28 ára og lék við góðan orðstír með Brighton frá 2022 til 2025 áður en hann gekk til liðs við AC Milan.
Estupinan og Emery þekkjast vel frá tíma sínum saman hjá Villarreal, þar sem þeir unnu Evrópudeildina.
Villa þyrfti að öllum líkindum ekki að greiða háa upphæð fyrir Estupinan, sem missti sæti sitt í byrjunarliði Milan snemma á síðasta tímabili.