Fotbolti.net
14.07.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í dag - Frakkar freista þess að komast í úrslit í þriðja sinn í röð

Kylian Mbappe leiðir Frakka áfram gegn Spánverjum

Kylian Mbappe leiðir Frakka áfram gegn Spánverjum

Canon

Mynd: EPA

Frakkland og Spánn mætast í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó klukkan 19:00 í kvöld. Leikurinn er spilaður á Dallas-leikvanginum í Arlington í Texas-ríki.
Frakkar hafa komist í úrslit á síðustu tveimur mótum og eiga nú möguleika á að komast í þriðja sinn í röð. Þeir unnu HM í Rússlandi árið 2018, en töpuðu fyrir Argentínu í Katar.

Spánverjar hafa á meðan aðeins komist einu sinni í úrslit, árið 2010, en þeir unnu mótið það árið. Þeir eru ríkjandi Evrópumeistarar og taldir afar sigurstranglegir í ár þannig það má búast við svakalegum leik í Dallas.

Sigurvegarinn mætir Argentínu eða Englandi á MetLife leikvanginum í New Jersey þann 19. júlí.

Leikur dagsins:
19:00 Frakkland - Spánn
Lamine Yamal verður í liði Spánverja

Lamine Yamal verður í liði Spánverja

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.