4. deild: Tvö rauð spjöld fóru á loft er Elliði komst aftur á sigurbraut

Pétur Óskarsson var heitur í liði Elliða en hann er kominn með níu mörk í deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Elliði 4 - 1 KFR
1-0 Benedikt Elí Bachmann ('9 )
2-0 Pétur Óskarsson ('40 )
2-1 Helgi Valur Smárason ('52, víti )
3-0 Pétur Óskarsson ('65 )
4-0 Natan Hjaltalín ('88 )
Rautt spjald:Ellert Geir Ingvason ('85, KFR), Aron Birkir Guðmundsson ('85, KFR)

Elliði vann sinn fjórða deildarsigur á tímabilinu þegar liðið hafði betur gegn KFR, 4-1, í 4. deild karla í gær.
Árbæingar höfðu tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn, en KFR hafði ekki unnið síðan í byrjun júní.
Benedikt Elí Bachmann kom Elliða yfir og Pétur Óskarsson bætti við öðru marki fyrir hlé.
Gestirnir unnu sig aftur inn í leikinn snemma í síðari hálfleik þegar Helgi Valur Smárason skoraði úr vítaspyrnu á 52. mínútu.
Pétur skoraði hins vegar sitt annað mark þegar síðari hálfleikurinn var hálfnaður og kom Elliða aftur í tveggja marka forystu.
KFR varð manni færra fimm mínútum fyrir leikslok þegar varamaðurinn Aron Birkir Guðmundsson fékk að líta rauða spjaldið. Ellert Geir Ingvason, sem var í liðsstjórn gestanna, var einnig rekinn af velli.
Natan Hjaltalín innsiglaði síðan 4-1 sigur Elliða þremur mínútum síðar.
Elliði er í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig, en KFR situr í sjöunda sæti með átta stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Álftanes | 10 | +17 | 27 |
| 2 | Hamar | 10 | +23 | 25 |
| 3 | Árborg | 9 | +20 | 19 |
| 4 | Elliði | 10 | -5 | 13 |
| 5 | Úlfarnir | 10 | +1 | 12 |
| 6 | Vængir Júpiters | 9 | 0 | 11 |
| 7 | KFR | 10 | -11 | 8 |
| 8 | Álafoss | 10 | -11 | 8 |
| 9 | ÍH | 10 | -7 | 7 |
| 10 | Hafnir | 10 | -27 | 7 |