Fotbolti.net
13.07.26 - 23:50
Brynjar Ingi Erluson

Jones í miklum metum hjá nýja stjóranum

Jones í miklum metum hjá nýja stjóranum
Canon

Mynd: EPA

Möguleiki er á því að enski miðjumaðurinn Curtis Jones verði áfram hjá Liverpool á komandi leiktíð.
Jones er sagður vilja fá stærra hlutverk en það sem hann hefur fengið hjá uppeldisfélagi sínu.

Hann hefur því verið að kanna möguleika sína og hefur Inter sýnt honum mestan áhuga. Ítalska félagið var þó ekki tilbúið að greiða þær rúmlega 30 milljónir punda sem Liverpool er sagt vilja fá fyrir hann.

Nottingham Forest hefur einnig verið orðað við Jones, en ekki er útilokað að hann verði áfram á Anfield.

„Curtis Jones er í miklum metum hjá mér. Hann er frábær leikmaður og það skiptir miklu máli að hann sé frá Liverpool. Ég er líka mjög hrifinn af persónuleika hans, þannig að vonandi tekst okkur að halda honum, ekki aðeins út þetta tímabil heldur til lengri tíma,“ sagði Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool, um Jones.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.