Þrír Englendingar fá falleinkunn - Sæti Gordon í hættu

Anthony Gordon hefur verið mjög slakur í byrjun móts

Mynd: EPA

Rashford gæti tekið sætið af Gordon í næstu leikjum

Fjölmiðlar á Englandi voru sammála um það að Anthony Gordon hafi verið slakasti maður enska landsliðsins í markalausa jafnteflinu gegn Gana í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Englendingar jarðtengdir í Boston
Frammistaða Englendinga var ekki frábær en hún var ekki heldur alveg ömurleg.
Nokkrir leikmenn voru hins vegar slakir. Anthony Gordon, sem gekk á dögunum í raðir Barcelona frá Newcastle United, hefur ekki sannað að hann eigi að byrja á vinstri vængnum.
Hann fær 4 í einkunn frá flestum miðlum og er sæti hans langt í frá öruggt fyrir restina af mótinu en hann náði ekki heldur að finna sig gegn Króötum í fyrstu umferðinni. Ef Marcus Rashford nær að koma sér í 100 prósent form mun hann taka sætið.
Aðrir voru ósammála varðandi Konsa og Kane. Guardian gaf Konsa 5 á meðan Kane fékk 6. Í Independent fékk Konsa 6 en Kane 5.
Sky Sports gaf Konsa og Kane 4. Konsa var stálheppinn að breyta ekki leiknum algerlega er hann fór í heimskulega tæklingu í seinni hálfleiknum. VAR skoðaði ekki það atvik sérstaklega og slapp hann með skrekkinn þar. Kane var á meðan hálfgerður áhorfandi í þessum leik og þegar hann fékk færi til að skora þá klúðraði hann því illa.
Einkunnir Englendinga (Sky): Pickford (5), James (5), Konsa (4), Guehi (5), Spence (5), Anderson (5), Rice (5), Madueke (6), Bellingham (7), Gordon (4), Kane (4).
Varamenn: O'Reilly (7), Saka (6), Rogers (5), Eze (4), Rashford (6).