24.07.07 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Robbie Fowler til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Robbie Fowler skrifaði í morgun undir tveggja ára samning við Cardiff City sem leikur í næstefstu deild á Englandi og var um leið kynntur sem nýjasti leikmaður liðsins.
,,Ástríðan í þessari móttökuathöfn er frábær, ég hefði ekki getað beðið um meira," sagði hinn 32 ára gamli Fowler.
,,Þetta félag er sofandi risi, það er svo mikið í gangi í kringum borgina, nýr æfingavöllur og nýr leikvangur á leiðinni, þvílíkur tími til að koma til Cardiff."
,,Aðalmarkmiðið er að komast aftur í úrvalsdeildina með Cardiff," bætti Fowler við en Cardiff ætlar sér stóra hluti og hefur í sumar einnig fengið tvo aðra leikmenn með reynslu úr úrvalsdeildinni, þá Trevor Sinclair og Stephen McPhail.

Heimild: BBC