Fotbolti.net
24.07.07 - 12:08
Magnús Már Einarsson

Sanogo frá Hamburg til Werder Bremen (Staðfest)

Sanogo frá Hamburg til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur keypt framherjann Boubacar Sanogo frá Hamburg SV og hefur þessi 24 ára gamli leikmaður gert fjögurra ára samning við félagið.
Sanogo sem er frá Fílabeinsströndinni átti ekki góðar stundir hjá Hamburg þar sem að stuðningsmenn liðsins bauluðu á hann.

Sanogo sem á að leysa Miroslav Klose af hólmi hjá Werder Bremen var einnig undir smásjánni hjá Stuttgart en hann fór að lokum til Bremen.

Eftir að hafa samið við liðið í gær æfði Sanogo með Werder Bremen í morgun og hann mun væntanlega leika með liðinu í æfingaleik gegn Paderborn í kvöld.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.