Fotbolti.net
24.07.07 - 22:30
Magnús Már Einarsson

Christian Christiansen til FC Hjørring (Staðfest)

Christian Christiansen eftir sigurleik Fylkis gegn Val í Laugardalnum í kvöld.

Christian Christiansen eftir sigurleik Fylkis gegn Val í Laugardalnum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski sóknarmaðurinn Christian Christiansen mun yfirgefa Fylki þegar að tímabilið klárast og ganga til liðs við FC Hjørring sem leikur í 2.deild vestur (þriðju efstu deild) í heimlandi hans en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í kvöld.
Christian sem hefur leikið með Fylki undanfarin þrjú tímabil mun klára tímabilið með Árbæjarliðinu og ganga síðan til liðs við Hjørring þegar félagaskiptaglugginn opnar aftur um áramót en danska félagið hafði vonast til að fá hann fyrr til sín.

,,Ég vil klára þetta á réttu nótunum og spila síðustu leikina með Fylki. Ég hef átt góða tíma hjá Fylki, eignast góða vini og Fylkir er gott félag en ég sakna vina minna og fjölskyldu í Danmörku og ætla í nám þar," sagði Christian við Fótbolta.net í kvöld.

Síðustu þrjú tímabil hefur hinn 25 ára gamli Christian skoraði tíu mörk í 44 deildar og bikarleikjum með Fylki.

Í sumar hefur hann leikið alla alla ellefu leiki liðsins í Landsbankadeildinni og skorað í þeim tvö mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.