Fotbolti.net
24.07.20 - 22:55
Aksentije Milisic

Lampard sér eftir því að hafa látið ljót orð falla

Lampard í leiknum umtalaða.

Lampard í leiknum umtalaða.

Canon

Mynd: Getty Images

Frank Lampard, stjóri Chelsea, segist sjá eftir sumum orðum sem hann lét falla á hliðarlínunni í leik Liverpool og Chelsea í fyrradag.
Klopp og Lampard rifust eftir aukaspyrnudóm og kollegarnir öskruðu á hvorn annan.

„Ég hef séð myndböndin. Ég sé eftir sumum orðum sem ég sagði þarna," sagði Lampard.

„Hlutir eru skoðaðir mjög oft á samfélagsmiðlum. Ég á tvær dætur sem eru á samfélagsmiðlum. Ég sé hins vegar ekki eftir því að hafa staðið upp fyrir mínu liði með ástríðu."

„Sumir miðlar sögðu að ég væri pirraður með hvernig Liverpool liðið fagnaði. Það er langt því frá að vera satt."

Klopp sagði að Lampard ætti margt eftir ólært.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.