Fotbolti.net
24.08.05 - 10:55
Hafliði Breiðfjörð

Bassila til Sunderland (Staðfest)

Bassila til Sunderland (Staðfest)
Canon
Sunderland hafa gengið frá samningum við Christian Bassila sem kemur frá Strasbourg í Frakklandi. Bassila sem er 27 ára gamall miðjumaður skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í morgun og mun æfa með þeim í fyrramálið.
Talið er líklegt að hann verði í leikmannahópnum sem mætir Wigan um helgina. Bassila var í nokkra daga við æfingar hjá Sunderland fyrr í mánuðinum og sannaði sig svo á þeim að Mick McCarthy vildi semja við hann.


,,Hann æfði með okkur í nokkra daga og heillaði. Hann er varnar miðjumaður sem getur spilað í öllum varnarstöðunum líka. Hann spilar einfalt, fer vel með bolta og brýtur hlutina upp. Hann er kraftmikill miðvallarleikmaður," sagði Mick McCarthy nú í morgun.

Bassila spoilaði á sínum tíma með Thierry Henry í franska U-21 árs landsliðinu. Hann hafði leikið 122 leiki með Strasbourg síðan hann kom þangað árið 2001.

Hann hefur áður leikið í ensku úrvalsdeildinni en hann var á láni hjá West Ham fyrir fimm tímabilum er hann spilaði þrjá leiki fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.