Fotbolti.net
24.08.06 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Jan Vennegoor of Hesselink til Celtic (Staðfest)

Jan Vennegoor of Hesselink til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski framherjinn Jan Vennegoor of Hesselink hefur gengið til liðs við skosku meistarana í Glasgow Celtic frá PSV Eindhoven fyrir 3,4 milljónir punda.
Þessi 27 ára hollenski landsliðsmaður lék einn leik á HM í sumar en hann gekk til liðs við PSV frá FC Twente árið 2001. Á dögunum virtist hann vera á leið til Porto á 3,1 milljón punda en ekkert varð af því.

,,Celtic er frábært félag með frábæra stuðningsmenn og félagið hefur mikla sögu," sagði Vennegoor of Hesselink fyrr í vikunni en hann hefur tekið sér góðan tíma í að skrifa nafnið sitt á samninginn enda er hann með eitt af lengsta nafnið í boltanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.