24.08.06 - 18:55
Magnús Már Einarsson
Martins til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur gengið frá kaupunum á nígeríska framherjanum Obafemi Martins frá Inter Milan á 10,1 milljónir punda en þessi snöggi leikmaður skrifaði undir fimm ára samning eftir að hafa staðiðst læknisskoðun í dag.
,,Það hafa tugir annarra sóknarmanna verið orðaðir við okkur en þetta var maðurinn sem ég vildi alltaf. Ég vildi hraðann. Svo vegna allra sögusagnanna þá vissi ég hverjum ég var á eftir," sagði Glenn Roeder stjóri Newcastle.
Inter keypti Zlatan Ibrahimovic og Hernan Crespo í sumar sem þýddi að Martins fór aftar í goggunarröðinni. Hann segir mikinn vilja Newcastle á að fá sig hafa haft mikið að segja í ákvörðun sinni. ,,Að spila í úrvalsdeildinni hefur verið lantímamarkmið og ég er gríðarlega ánægður með þá tilhugsun að klára samninginn á næstu dögum," hafði Martins sagt fyrr í vikunni.
Martins verður væntanlega á meðal áhorfenda á St James' Park í kvöld þegar að Newcastle mætir FK Ventspils í Evrópukeppninni og hann gæti síðan farið beint í hópinn sem mætir Aston Villa á sunnudaginn.