24.08.07 - 13:25
Sindri Þór Þorgeirsson
Taribo West til liðs í Íran (Staðfest)

Taribo West er þekktur fyrir flippaðar hárgreiðslur

Mynd: Getty Images

Taribo West er þekktur fyrir flippaðar hárgreiðslur

Mynd: Getty Images
Fyrrum nígeríski landsliðsmaður litríki Taribo West hefur nú loksins fundið sér klúbb en hann er genginn til liðs við íranska úrvalsdeildarliðið Paykan á eins árs samning en hann hefur verið frá keppni í tæp tvö ár eftir að hann hætti hjá enska liðinu Plymouth í október 2005.
Talið er að West muni fá um 250 þúsund dollara í laun á meðan samningstímanum stendur, og hann mun vonast til að geta bætt árangur liðsins síðan í fyrra þegar þeir lentu í sjöunda sæti deildarinnar.
West sem er 33 ára varnarmaður á 41 landsleik að baki fyrir Nígeríu byrjaði feril sinn í Evrópu með franska liðinu Auxerre en síðan þá hefur hann meðal annars leikið með Inter Milan, AC Milan, Derby County, Kaiserslautern og Partizan Belgrade, svo nokkur dæmi séu tekin.

Heimild: BBC