24.08.07 - 22:55
Hörður Snævar Jónsson
Branislav Milisevic frá Keflavík til Start í Noregi (Staðfest)

Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Branislav Milisevic leikmaður Keflavíkur hefur gert samning við norska félagið Start. Samningur Branislav er til fjögurra ára og mun hann fara til félagsins á næstu dögum. Þetta staðfesti Milisevic í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Branislav Milisevic kemur frá Serbíu og er 24 ára gamall kant og bakvörður. Þetta er þriðja leiktíðin sem hann er hjá Keflavík.
Hann var í liði Keflavík sem vann VISA-bikarinn á síðustu leiktíð og lék 15 leiki í Landsbankadeildinni. Í ár hefur Branislav leikið 12 leiki með Keflavík í Landsbankadeildinni.
Óvíst var hvort hann yrði með Keflavík í sumar vegna atvinnuleyfis en það gekk í gegn á endanum. Ljóst er að þetta er mikil blóðtaka fyrir Keflavík en Branislav hefur leikið mjög vel með Keflavík í sumar.
Jóhannes Harðarson leikur með Start en liðið er sem stendur í næstneðsta sæti norsku deildarinnar með fimmtán stig líkt og Odd Grenland sem er í tólfta sæti og Sandefjord sem er í fjórtánda og neðsta sætinu.