Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. ágúst 2019 15:17
Ívan Guðjón Baldursson
Crouch og Joe Cole ánægðir með Abraham
Mynd: Getty Images
Peter Crouch og Joe Cole starfa sem knattspyrnusérfræðingar hjá BT Sport eftir fínustu ferla sem atvinnumenn í knattspyrnu.

Þeir horfðu á viðureign Norwich og Chelsea í dag og hrósuðu ungum leikmönnum Chelsea sérstaklega fyrir sinn þátt. Tammy Abraham skoraði tvennu og var maður leiksins og gerði Mason Mount hitt markið.

„Tammy hefur allt sem þarf til að verða aðal sóknarmaðurinn hjá Chelsea. Hann er snöggur, sterkur, góður að halda boltanum og á eftir að bæta sig á næstu árum. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hann verði helsti sóknarmaður Chelsea í mörg ár," sagði Cole sem spilaði fyrir Chelsea í sjö ár, frá 2003 til 2010.

„Þegar Giroud spilar þá getur varnarlína andstæðinganna verið hátt uppi en það er ekki hægt á móti Tammy, hann er alltof fljótur. Tammy getur lært margt af Giroud."

Crouch tók undir þessi orð Cole og talaði um hversu góður Abraham væri að halda boltanum. Crouch þekkir til í þeim geira eftir að hafa sinnt nákvæmlega því hlutverki til margra ára í úrvalsdeildinni.

„Hann hefur fengið smá gagnrýni en í dag fannst mér hann halda boltanum virkilega vel. Hann var duglegur að fá boltann frá miðjunni og spilaði mjög vel. Hann skoraði ekki bara tvennu heldur var hann frábær," sagði Crouch.
Athugasemdir
banner
banner
banner