Gary Martin gekk í raðir ÍBV um mitt sumar í tilraun til að bjarga félaginu frá falli en fjögur mörk í átta leikjum dugðu ekki til.
ÍBV féll eftir 2-1 tap gegn ÍA fyrr í dag og skoraði Gary eina mark Eyjamanna í leiknum. Það var glæsilegt en skilaði ekki inn stigi.
Gary Martin gaf frá sér yfirlýsingu á Twitter eftir leikinn þar sem hann þakkar fyrir sig.
„Ég vil þakka ÍBV fyrir að gefa mér tækifæri til að spila fyrir félagið. Að falla er versta tilfinning sem ég hef fundið en ég gaf mig allan í þetta verkefni," skrifaði Gary.
„Fólkið hjá félaginu, stuðningsmenn og Eyjamenn hafa verið mjög góðir við mig, ég vildi óska þess að við gætum snúið þessu við."
Just like to thank IBV for the opportunity to play for the club. Difficult situation and it’s the worst feeling I’ve had being relegated but I gave it my all.
— Gaz Martin (@G9bov) August 24, 2019
The people at the club, the fans and on the island have been great to me,I wish we could of turned it around #aframibv
Athugasemdir