Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. september 2021 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía um helgina - Inter fær Atalanta í heimsókn
Mynd: EPA
Sjötta umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar er um helgina. Umferðin hefst á leik Spezia og AC Milan á morgun.

Stórleikur umferðinnar hefst síðan kl 16 er Inter fær Atalanta í heimsókn. Genoa og Verona mætast í lokaleik morgundagsins.

Juventus sem vann sinn fyrsta leik í deildinni í síðustu umferð gegn Spezia mætir Sampdoria á sunnudagsmorgun. Roma og Lazio mætast seinni partinn og topplið Napoli fær Cagliari í heimsókn í síðasta leik sunnudagsins. Umferðinni lýkur þegar íslendingaliðið Venezia fær Torino í heimsókn á mánudagskvöldið.

Alla leiki helgarinnar má sjá hér að neðan.

laugardagur 25. september

13:00 Spezia - Milan
16:00 Inter - Atalanta
18:45 Genoa - Verona

sunnudagur 26. september

10:30 Juventus - Sampdoria
13:00 Empoli - Bologna
13:00 Sassuolo - Salernitana
13:00 Udinese - Fiorentina
16:00 Lazio - Roma
18:45 Napoli - Cagliari

mánudagur 27. september

18:45 Venezia - Torino
Athugasemdir
banner
banner