Fotbolti.net
24.09.22 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Valverde á skotboltaæfingu gegn Íran

Myndband: Valverde á skotboltaæfingu gegn Íran
Canon

Mynd: Getty Images

Federico Valverde er ansi fjölhæfur miðjumaður. Hann leikur fyrir stórveldi Real Madrid og er lykilmaður í úrúgvæska landsliðinu.

Hann var í liði Úrúgvæ sem spilaði æfingaleik við Íran í gær og tapaði honum óvænt þrátt fyrir mikla yfirburði. 

Valverde er afar skotfastur og komst nokkrum sinnum nálægt því að skora í leiknum en alltaf tókst varnarmönnum Íran að fórna sér fyrir bylmingsskotin.

Þegar skotin eru öll tekin saman og sett í myndband kemur í ljós að Valverde var alltaf að þruma boltanum í sama andstæðing, leikmanninn í treyju númer 4, Shoja Khalilzadeh.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.