Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
   sun 24. september 2023 13:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðin í Grafarvogi: Fyssi Kalli og Óliver koma inn
Lengjudeildin
Guðmundur Karl kemur inn.
Guðmundur Karl kemur inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marvin Darri hefur varið mark Vestra í undanförnum leikjum og er áfram í rammanum.
Marvin Darri hefur varið mark Vestra í undanförnum leikjum og er áfram í rammanum.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Klukkan 14:00 hefst seinni undanúrslitaleikur Fjölnis og Vestra í Lengjudeildarumspilinu.

Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Vestra eftir fyrri leikinn sem fram fór á miðvikudag. Leikurinn í dag fer fram í Grafarvogi.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 Vestri

Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, gerir tvær breytingar á sínu liði. Sigurvin Reynisson er ekki í hóp og Baldvin Þór Berndsen tekur sér sæti á bekkinn. Guðmundur Karl Guðmundsson, Fyssi Kalli, kemur inn og Óliver Dagur Thorlacius gerir það líka.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir enga breytingu á sínu liði. Sömu átján eru í leikmannahópi Vestra og voru á miðvikudag.

Byrjunarlið Fjölnir:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Júlíus Mar Júlíusson
7. Bjarni Þór Hafstein
8. Óliver Dagur Thorlacius
9. Bjarni Gunnarsson
10. Axel Freyr Harðarson
10. Máni Austmann Hilmarsson
11. Dofri Snorrason
17. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson (f)

Byrjunarlið Vestri:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
2. Morten Ohlsen Hansen (f)
3. Elvar Baldvinsson
6. Ibrahima Balde
7. Vladimir Tufegdzic
10. Nacho Gil
10. Tarik Ibrahimagic
11. Benedikt V. Warén
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Silas Songani
40. Gustav Kjeldsen
Athugasemdir
banner