24.09.26 - 20:47
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld og var mesta fjörið í Noregi þar sem Erling Braut Haaland og félagar tóku á móti frændum sínum frá Danmörku.
Noregur - Danmörk
Norðmenn byrjuðu af miklum krafti og náði Oscar Bobb forystunni á fjórtándu mínútu, fjórum mínútum áður en Erling Haaland tvöfaldaði forystuna með skoti sem fór í gegnum klofið á Filip Jörgensen markverði, sem hefði mátt gera betur.
Hann gerði þó alls ekki jafn illa og Örjan Nyland sem gaf Dönum næsta mark leiksins. Mikkel Damsgaard skoraði beint úr aukaspyrnu og stóð Nyland grafkyrr í miðju markinu á meðan boltinn fór í netið aðeins um meter frá honum. Staðan var því 2-1 í leikhlé.
Danir voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik og jöfnuðu metin eftir hornspyrnu. Aftur var við Nyland að sakast þar sem hann varði lausan skalla, sem átti að vera nokkuð auðvelt að eiga við, aftur út í vítateiginn og fylgdi Rasmus Höjlund eftir með marki. Staðan orðin 2-2 á 60. mínútu.
Leikurinn var áfram opinn og skemmtilegur á lokakaflanum og endurheimtu heimamenn forystuna eftir stutta hornspyrnu á 74. mínútu. Danir steingleymdu einhvern veginn að dekka Haaland sem skoraði með góðu skoti eftir einfalda sendingu frá Ödegaard.
Þetta reyndist sigurmark leiksins svo Norðmenn byrja nýtt tímabil í Þjóðadeildinni á flottum sigri.
Holland - Þýskaland
Á sama tíma unnu Þjóðverjar sinn fyrsta leik undir stjórn Jürgen Klopp þegar þeir heimsóttu nágranna sína til Hollands.
Virgil van Dijk kom boltanum í netið snemma leiks en ekki dæmt gilt vegna brots hjá Brian Brobbey á Marc-André ter Stegen, markverði Þýskalands. Brobbey virtist þó ekki gera mikið af sér og hefði markið mögulega fengið að standa í ensku úrvalsdeildinni, en átta leikmenn hollenska byrjunarliðsins leika í deildinni.
Kai Havertz, leikmaður Arsenal, fór meiddur af velli á 30. mínútu og tveimur mínútum síðar náði samlandi hans Felix Nmecha forystunni við mikil mótmæli Hollendinga sem vildu láta stöðva leikinn vegna meiðsla Brobbey, sem lá eftir. Varnarmenn Hollands voru uppteknir af því að benda dómaranum á að stöðva leikinn þegar Þjóðverjar skoruðu.
Staðan var 0-1 í leikhlé og mættu heimamenn tvíefldir til leiks út í síðari hálfleikinn. Þeir sköpuðu frábær færi en Ter Stegen átti stórleik á milli stanga Þýskalands og tókst næstum því að halda hreinu. Hann fékk mark á sig þegar Cody Gakpo, fyrrum lærlingur Klopp hjá Liverpool, jafnaði í uppbótartíma eftir stórkostlega utanfótar fyrirgjöf frá Ruben van Bommel. Lokatölur 1-1.
Portúgal - Wales
Cristiano Ronaldo og Joao Félix leiddu þá sóknarlínu Portúgal í 1-0 sigri gegn Wales. Félix skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og lék Ronaldo fyrstu 68 mínúturnar. Ronaldo kom boltanum í netið í síðari hálfleik en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu eftir nánari athugun í VAR.
Portúgalir voru sterkari aðilinn en þeim tókst ekki að bæta öðru marki við á meðan lærlingar fengu tvö hættuleg færi til að jafna, sem þeim tókst ekki að nýta.
Serbía - Grikkland
Að lokum áttust Serbía og Grikkland við og komust heimamenn yfir snemma leiks og leiddu í hálfleik, 1-0. Andrija Zivkovic, fyrrum leikmaður Benfica, skoraði eftir undirbúning frá gömlu kempunni Dusan Tadic.
Grikkir voru sterkari aðilinn í opnum og skemmtilegum slag og tókst þeim að jafna í síðari hálfleik. Christos Tzolis, nýr leikmaður Arsenal, skoraði á 74. mínútu eftir undirbúning frá Vangelis Pavlidis sem hefur verið óstöðvandi með Benfica í portúgölsku deildinni á undanförnum árum.
Grikkir voru áfram betra liðið en bæði lið fengu góð færi til að skora. Sigurmarkið leit dagsins ljós seint í uppbótartíma og var Anastasios Douvikas, framherji Como á Ítalíu sem átti frábært tímabil á síðustu leiktíð, á ferðinni eftir undirbúning frá Kostas Tsimikas bakverði Liverpool.
Lokatölur 1-2 og byrja Grikkir vel í A-deild Þjóðadeildarinnar.
Noregur 3 - 2 Danmörk
1-0 Oscar Bobb ('14 )
2-0 Erling Haaland ('18 )
2-1 Mikkel Damsgaard ('25 )
2-2 Rasmus Hojlund ('60 )
3-2 Erling Haaland ('74 )
Rautt spjald: David Wolfe, Norway ('90)
Holland 1 - 1 Þýskaland
0-1 Felix Nmecha ('32 )
1-1 Cody Gakpo ('92)
Portúgal 1 - 0 Wales
1-0 Joao Felix ('22 )
Serbía 1 - 2 Grikkland
1-0 Andrija Zivkovic ('4 )
1-1 Christos Tzolis ('74 )
1-2 Anastasios Douvikas ('95)