Fotbolti.net
24.10.05 - 17:09
Hafliði Breiðfjörð

Freyr Karlsson í Fram (Staðfest)

Freyr Karlsson í leik með Þrótti í sumar.

Freyr Karlsson í leik með Þrótti í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Freyr Karlsson sem hefur leikið með Þrótti undanfarin tvö ár hefur snúið aftur í sitt uppeldisfélag, Fram. Freyr skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Safamýrarliðið.
Freyr Karlsson er 26 ára gamall. Hann hóf feril sinn hjá Fram en gekk í raðir Þróttara í maí í fyrra og lék með þeim í 1. deildinni og svo aftur í Landsbankadeildinni í sumar. Hann lék 16 af 18 leikjum Þróttar í sumar. Auk Þróttar og Fram hefur Freyr leikið eina leiktíð með Víkingum, árið 2000.

Hjá Fram mun hann væntanlega hitta fyrir Ásgeir Elíasson sem þjálfaði hann hjá Þrótti undanfarin tvö ár og þjálfaði Fram er Freyr var að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki Fram. Ásgeir á nú í viðræðum við Fram um að taka við þjálfun liðsins.

Sjá einnig:
Hin hliðin á Frey Karlssyni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.