Fotbolti.net
24.10.05 - 19:22
Magnús Már Einarsson

Vilhjálmur í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Vilhjálmur í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn skotfasti Vilhjálmur Ragnar Vilhjálmsson hefur gert eins árs samning við Víking Ólafsvík en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Vilhjálmur lék fjóra leiki með Víkingi í fyrstu deildinni í sumar en hann var þá í láni frá Víkingi Reykjavík.
Þessi fyrrum leikmaður Stjörnunnar fór til sænska liðsins Vasteras SK í sumar og lék með liðinu í næstefstu deild þar í landi. Hann yfirgaf síðan félagið á dögunum eftir að ljóst var að það væri fallið niður um deild.

Á heimasíðu Víkings Ólafsvík kemur einnig fram að Slavisa Mitic hafi framlengt samning sinn við liðið en á dögunum gerðu Einar Hjörleifsson, Elínbergur Sveinsson, Ragnar Már Sigrúnarson og Ragnar Smári Guðmundsson slíkt hið sama.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.