Fotbolti.net
24.10.06 - 18:38
Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki tekur við Breiðablik (Staðfest)

Jörundur Áki tekur við Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik sendi í kvöld frá sér fréttatilkynningu þar sem það var staðfest að Jörundur Áki Sveinsson verði næsti þjálfari kvennaliðs félagsins. Þetta er í annað sinn sem hann tekur við kvennaliðinu því hann stýrði því síðast frá 1997 til 2001.
Jörundur Áki var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni árin 1996-1997. Haustið 1997 tók hann við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna Breiðabliks og gegndi því starfi til ársins 2001 en þá tók hann við meistaraflokki karla hjá félaginu og var með hann til ársins 2003. Jörundur var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fram leiktímabilið 2004 og var síðan aðalþjálfari meistaraflokks karla Stjörnunnar leiktímabilin 2005 og 2006.

Jörundur var aðalþjálfari A-landsliðs kvenna árin 2001-2002 og 2005-2006. Þá þjálfaði hann U-21 árs landslið kvenna árið 2000.

Jörundur hampaði Íslandsmeistaratitlinum með meistaraflokki kvenna hjá Breiðabliki árin 2000 og 2001 og varð einnig bikarmeistari með sama liði 1998 og 2000.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.