24.10.07 - 15:29
Magnús Már Einarsson
Auðun Helgason í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Auðun Helgason hefur tekið ákvörðun um að ganga til liðs við Fram. Eftir örskamma stund hefst fréttamannafundur hjá Fram þar sem Auðun verður kynntur sem nýjasti leikmaður liðsins en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Auðun hætti hjá FH á dögunum en í gær hafnaði hann tilboði frá KA um að gerast þjálfari liðsins.
Fleiri lið voru á höttunum á eftir Auðuni og auk Fram og KA munu Valur og Stjarnan hafa sóst eftir kröftum leikmannsins samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Auðun Helgason er 33 ára gamall og uppalinn hjá FH. Hann hefur einnig leikið með Leiftri á Ólafsfirði hér á landi auk þess sem hann var í fjölda ára í atvinnumennsku hjá Landskrona í Svíþjóð, Lokeren í Belgíu, Viking í Noregi og Neuchatel í Svíþjóð.
Hann sneri aftur í íslenska boltann fyrir sumarið 2005 og gekk þá í raðir FH. Hann átti frábæra leiktíð með liðinu það árið og skoraði 5 mörk í 18 leikjum í Landsbankadeildinni. Í lok sumars var hann svo kjörinn íþróttamaður FH. Hann lenti svo í krossbandameiðslum í apríl í fyrra og lék af þeim sökum ekkert með FH í Landsbankadeildinni í fyrrasumar en sneri aftur á fóboltavöllinn í nokkrar mínútur er FH mætti KF Nörd í október.
Hann var svo orðinn heill af meiðslunum fyrir þessa leiktíð en átti erfitt með að vinna sér sæti í byrjunarliðinu hjá FH og spilaði aðeins fimm leiki í deild og bikar og skoraði í þeim eitt mark. Hann á að baki 104 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim átta mörk.
Hann á að baki 35 leiki fyrir A-landslið Íslands auk 12 leikja með U21 árs landsliðinu og 12 með U19 ára landsliðinu.