24.10.26 - 12:57
Brynjar Ingi Erluson
Emelía með tvennu fyrir toppliðið

Emelía Óskars skoraði tvö

Mynd: HB Köge

Emelía Óskars skoraði tvö

Mynd: HB Köge

Emelía Óskarsdóttir skoraði tvö mörk í 3-2 sigri danska meistaraliðsins Köge gegn Kolding í dag.
Landsliðskonan var ekki lengi að láta til sín taka og skoraði fyrsta markið strax á fyrstu mínútu leiksins. Hún bætti svo öðru marki við um hálftíma síðar.
Hún hefur nú skorað fimm mörk í deildinni á tímabilinu og er í tíunda sæti á listanum yfir markahæstu leikmenn.
Köge er á toppi deildarinnar með 29 stig eftir tólf umferðir, sjö stigum meira en Nordsjælland sem er í öðru sæti.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom inn af bekknum í 2-1 tapi Bröndby gegn Midtjylland, en Bröndby er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir sat hins vegar allan tímann á bekknum hjá FCK sem tapaði 3-1 fyrir Fortuna Hjörring. FCK er í næstneðsta sæti með sex stig.