Fotbolti.net
24.10.26 - 13:05
Brynjar Ingi Erluson

Dramatískur sigur hjá Jóni Degi

Jón Dagur er í toppmálum

Jón Dagur er í toppmálum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í Herthu Berlín fögnuðu sínum áttunda deildarsigri á tímabilinu í þýsku B-deildinni í dag.
Landsliðsmanninum hefur gengið vel með Herthu í upphafi tímabils og er liðið enn taplaust eftir níu umferðir. Hertha vann fyrstu sjö deildarleikina áður en liðið gerði sitt fyrsta jafntefli í síðustu umferð.

Jón Dagur var í byrjunarliðinu gegn Arminia Bielefeld í dag og stefndi allt í markalaust jafntefli þar til Hertha fékk vítaspyrnu í uppbótartíma. Leikmaður Arminia hafði þá handleikið boltann eftir hornspyrnu.

Króatíski vængmaðurinn Josip Brekalo fór á punktinn og skoraði af öryggi og tryggði Herthu þar með áttunda deildarsigurinn. Liðið er áfram á toppnum með 25 stig, sjö stigum meira en næsta lið.

Andri Fannar Baldursson kom inn af bekknum í síðari hálfleik þegar Kasimpasa vann 1-0 sigur á Eyupspor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Kasimpasa er í fimmta sæti með 16 stig.

Þá kom Logi Hrafn Róbertsson inn af bekknum hjá Värnamo sem tapaði 1-0 fyrir Sandviken í sænsku B-deildinni. Värnamo er í tíunda sæti með 32 stig þegar tvær umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.