Fotbolti.net
24.11.05 - 16:56
Magnús Már Einarsson

Hannes í Stjörnuna (Staðfest)

Hannes sem hér blakar boltanum yfir er farinn í Stjörnuna.

Hannes sem hér blakar boltanum yfir er farinn í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við Stjörnuna úr fyrstu deild en þetta staðfesti Jörundur Áki Sveinsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í dag.
Hannes sem er uppalinn hjá Leikni lék með Aftureldingu í annarri deildinni í sumar og var valinn bestur á lokahófi liðsins. Hann mun berjast við markvarðarstöðuna hjá Stjörnunni við Ögmund Ólafsson en Atli Knútsson sem spilaði flesta leiki í markinu hjá Garðbæingum síðastliðið sumar verður í Bandaríkjunum næsta sumar og verður því ekki með liðinu.

Jörundur Áki Sveinsson þjálfari Stjörnunnar sagði aðspurður hvort liðið væri að fá fleiri leikmenn: ,,Við erum nú tiltölulega rólegir núna. Við reyndum í haust að fá einhverja leikmenn en það gekk ekki. Við fengum Þorvald Árnason úr Aftureldingu og núna Hannes og við bara bíðum og sjáum. Ætli það gerist nokkuð fyrr en eftir áramót hjá okkur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.