Fotbolti.net
24.11.06 - 10:36
Magnús Már Einarsson

Middlesbrough lánar Ehiogu til Leeds (Staðfest)

Middlesbrough lánar Ehiogu til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hefur fengið varnarmanninn Ugo Ehiogu að láni frá Middlesbrough til fyrsta janúar næstkomandi en frá þessu greindi BBC Radio Leeds í gær.
Leeds krækti í kappann á síðustu stundu eða tveimur tímum áður en að lokað var á lánssamningi í neðri deildunum. Hinn 34 ára gamli Ehiogu sem á átta landsleiki að baki fyrir Englendinga hefur ekki komið við sögu hjá Boro á leiktíðinni vegna erfiðra meiðsla á fæti.

Alls hefur Ehiogu leikið 150 leikið fyrir Boro síðan að hann kom fyrir metfé til félagsins, eða átta milljónir punda frá Aston Villa árið 2000.

Leeds var ekki eina liðið sem vildi fá Ehiogu því að nokkur önnur lið í ensku fyrstu deildinni eins og Barnsley sýndu honum einnig áhuga auk þess sem að WBA mistókst að fá hann láni fyrr á leiktíðinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.