Fotbolti.net
15.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rayan alltaf verið stuðningsmaður Man Utd

Rayan alltaf verið stuðningsmaður Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski kantmaðurinn Rayan, sem er tvítugur og hefur skorað 2 mörk í 7 A-landsleikjum, hefur verið að gera flotta hluti frá komu sinni í enska boltann.
Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"
TENGT EFNI

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"

Rayan var keyptur til Bournemouth í síðasta janúarglugga fyrir um 30 milljónir punda og hefur komið með beinum hætti að 12 mörkum í 31 leik frá félagaskiptunum.

Hann er partur af brasilíska hópnum í landsleikjahlénu og kom ekki við sögu í 3-2 tapi gegn Japan, en tekur líklegast þátt í næsta leik gegn Singapúr.

Evanilson er liðsfélagi hans hjá Bournemouth og landsliðinu og fóru þeir saman í viðtal við ESPN. Þar ræddi Rayan meðal annars um frábæran sigur Bournemouth gegn Manchester United á Old Trafford.

„Þetta var ótrúleg stund þegar við unnum gegn Manchester United, liðinu sem ég hef alltaf haldið með. Að skora á Old Trafford var draumur að rætast," sagði Rayan. „Ég hef alltaf haldið með Man Utd út af Cristiano Ronaldo og ég hugsaði til hans þegar ég gekk inn á völlinn."
Rayan alltaf verið stuðningsmaður Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.