25.01.05 - 14:15
Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Guðmundsson til FH (Staðfest) - Viðtal við hann

Tryggvi skrifar undir samninginn

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Tryggvi skrifar undir samninginn

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Tryggvi Guðmundsson skrifaði í hádeginu í dag undir þriggja ára samning við Íslandsmeistara FH. Tryggvi hóf feril sinn með ÍBV hér á landi þaðan sem hann er uppalinn en hefur mjög sterkar tengingar til FH enda er faðir hans mikill FHingur og bróðir hans er með efnilegri leikmönnum 4. flokks FH. Auk ÍBV hefur hann einnig leikið með KR hér á landi en hann hefur undanfarin ár leikið með erlendum liðum en snýr nú heim til Íslands á ný. Við hittum Tryggva í dag og spurðum hann út í vistaskiptin.
Fjölmörg önnur lið höfðu reynt að fá Tryggva til liðs við sig en meðal þeirra voru lið á Norðurlöndunum eins og til dæmis hans gamla félag, Stabæk. En Tryggvi valdi að fara til Íslands og leika með FH.
,,Ég vel FH náttúrulega framyfir öll önnur íslensk liðs vegna þessa að þeir eru einfaldlega bestir í dag og sýndu mér strax mikinn áhuga," sagði Tryggvi.
,,Auk þess sem ég er með tengsl í þennan klúbb þar sem pabbi minn hefur verið hérna síðan ég man eftir mér og bróðir minn er í 4. flokki eins og er þannig að þetta var í sjálfu sér ekki erfið ákvörðun en samt ákvörðun að taka."
Tryggvi hóf feril sinn hjá ÍBV þar sem hann sló virkilega í gegn hér á landi en þar er hann uppalinn. Kitlaði ekkert að fara til Eyja á ný?
,,Nei það gerði reyndar það ekki, en náttúrulega hefur maður bullandi taugar til Eyjanna en ég var nú búinn að ákveða að ef ég kæmi heim þá myndi ég búa á höfuðborgarsvæðinu svo þess vegna varð ekkert úr því dæmi."
Tryggvi hafði áður verið sterklega orðaður við FH en það var í fyrr fyrir síðustu leiktíð. En var eitthvað til í þeim orðrómi?
,,Það var þarna á tímabili já þegar ég lenti í því að fótbrotna í desember 2003 og þá var samningurinn minn hjá Stabæk að renna út. Ég var samningslaus í einn og hálfan mánuð og þá voru FHingar búnir að setja sig í samband við mig en úr varð Örgryte. En þetta er rétt við vorum í sambandi í fyrra."
Þegar fréttir af því að Tryggvi væri á leið til FH, bárust fyrst hér á Fótbolti.net um helgina, kom einnig fram að hann færi til Stoke City á láni frá FH þar til leiktíðinni í Englandi lyki en með því móti yrði hann kominn heim á ný áður en Íslandsmótið hæfist að því gefnu að Stoke kæmist ekki í umspilssæti. Ekkert er hinsvegar enn ljóst í þeim málum.
,,Það verður bara að koma í ljós, ég bara veit ekkert sjálfur ef ég á að segja þér eins og er." sagði Tryggvi aðspurður hvort af því yrði að hann færi til Stoke.
Hjá FH verður Tryggvi í treyju númer níu en það er sama númerið og hann leikur oftast í. Hörður Magnússon markamaskína sem var hjá FH í mörg ár var alltaf í þeirri treyju en frá því hann hætti í boltanum og þar til núna hefur frændi hans Sigmundur P. Ástþórsson verið með númerið. En gerði Tryggvi kröfur um að fá þetta númer?
,,Engar rosa kröfur en ég var nú alltaf númer níu hér áður fyrr og mér sýnist ég vera að fá níuna hérna líka þannig að það er ekki leiðinlegt. Ég hef verið góður þegar ég hef verið með níuna, það er þessi blessaða hjátrú sem maður hefur alltaf verið með að mér hefur alltaf liðið mjög vel í níunni og það er ekki leiðinlegt að fá hana."
Þegar Tryggvi lék hér á landi síðast var hann í liði ÍBV sem náði frábærum árangri. Mikill léttleiki var í rúmi hjá ÍBV á þeim tíma og fögn leikmannana þegar mörk voru skoruð vöktu gífurlega athygli enda virkilega skondin. Við spurðum Tryggva hvort hann ætlaði að innleiða þessi fögn hjá sínu nýja félagi:
,,Ég veit það ekki svei mér þá, þetta var bara stundarbjálaði getur maður sagt þessi blessuðu fögn og tókust mjög vel. En kannski er maður orðinn of gamall fyrir þetta núna, ég veit það ekki, það verður bara að koma í ljós. En ég á það nú til að fagna mínum mörkum ágætlega og fékk til dæmis rautt spjald eftir að hafa fagnað marki með Örgryte í fyrra en þetta er oftast bara spontant þrefingar hjá manni þegar maður skorar en það verður bara að koma í ljós hvort það komi eitthvað sniðugt."
Tryggvi átti alltaf sæti í íslenska landsliðinu þó hann hafi ekki verið valinn síðan í Manchestermótinu síðasta sumar er Ísland mætti Japan og Englandi. Eftir það fékk hann fá tækifæri hjá Örgryte og var ekki valinn í landsliðshópinn í þeim leikjum sem komu eftir það. En gerir hann sér vonir um að vinna sér inn landsliðssætið á ný þrátt fyrir að vera kominn í íslensku deildina?
,,Ég veit það ekki, það er alveg sama hvar maður spilar. Ef maður spilar vel með sínu félagsliði þá kemur maður sjálfsagt til greina í landsliði. Ég gef allavega áfram kost á mér. Það verður svo bara að koma í ljós hvað þeir gera."