Fotbolti.net
25.01.05 - 15:09
Magnús Már Einarsson

Þorvaldur Már til Hauka (Staðfest)

Sigríði Kristjánsdóttur formður meistaraflokksráðs Hauka, Þorvaldur og Páll Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar liðsins handsala samninginn.

Sigríði Kristjánsdóttur formður meistaraflokksráðs Hauka, Þorvaldur og Páll Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar liðsins handsala samninginn.

Canon
Sóknarmaðurinn Þorvaldur Már Guðmundsson skrifaði undir þriggja ára samning við lið Hauka úr fyrstu deild síðastliðinn föstudag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Haukum.
Þorvaldur sem er 27 ára gamall kemur til Hauka frá Víkingi en hann lék sex leiki með Víkingum í efstu deild síðastliðið sumar. Þorvaldur hefur einnig leikið með Aftureldingu undanfarin ár og var hann meðal annars markahæstur í fyrstu deild sumarið 2002.

Þá skoraði hann átta mörk í níu leikjum með Mosfellingum í annari deild síðastliðið sumar þar sem hann var í láni frá Víking.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.