Fotbolti.net
25.01.05 - 16:03
Magnús Már Einarsson

Faye til Newcastle (Staðfest)

Faye og Graeme Souness stjóri Newcastle.

Faye og Graeme Souness stjóri Newcastle.

Canon
Newcastle hefur fengið senegalska miðjumanninn Amdy Faye frá Portsmouth en frá þessu var greint á heimasíðu fyrrnefnda liðsins fyrir stundu. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Faye er þriðji leikmaðurinn sem Newcastle fær í janúar. Hinir eru Jean Alain Boumsong sem kom frá Glasgow Rangers og Celestine Babayaro sem kom frá Chelsea.
Faye sem er 27 ára lék alls 52 leiki fyrir Portsmouth og þar af 21 á þessari leiktíð. Hann kom til Portsmouth frá Auxerre eftir HM 2002 en alls hefur Faye leikið átta landsleiki fyrir Senegala.

Allar líkur er á því að Faye geti leikið sinn fyrsta leik fyrir Newcastle gegn Coventry í FA bikarnum um næstu helgi en honum hefur verið úthlutað treyju númer 15 hjá Newcastle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.