25.01.06 - 08:17
Magnús Már Einarsson
Ailton lánaður til HSV (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Ailton hefur verið lánaður til Hamburger SV út tímabilið frá Besiktas í Tyrklandi en þessi 32 ára gamli leikmaður hefur ekki fundið sig þar síðan hann kom frá Schalke í sumar.
Ailton skoraði 28 deildarmörk þegar að Werder Bremen varð meistari árið 2003/2004 og á síðustu leiktíð eftir að hann fór til Schalke skoraði hann fjórtán mörk í 28 leikjum.
Hamburger SV getur keypt Ailton á 1,75 milljónir evra þegar að lánssamningurinn klárast í sumar en liðið krækti einnig í vikunni í 17 ára miðjumann að nafni Änis Ben-Hatira frá Tennis Borussia Berlin.