Fotbolti.net
25.01.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jon Dahl Tomasson til Villareal á láni (Staðfest)

Tomasson í landsleik gegn Íslendingum síðastliðið haust.

Tomasson í landsleik gegn Íslendingum síðastliðið haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Villareal hefur fengið danska framherjann Jon Dahl Tomasson að láni frá Stuttgart út þessari leiktíð með möguleika á að kaupa leikmanninn þegar að lánssamningurinn rennur út í júní.
Tomasson sem er þrítugur kom til Stuttgart árið 2005 en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu á þessari leiktíð. Hann hjálpaði Feyenoord að vinna Evrópukeppni Félagsliða árið 2002 og ári síðar vann hann Meistaradeildina með AC Milan.

Tomasson er annar leikmaðurinn sem Villareal fær í félagaskiptaglugganum en hinn er miðjumaðurinn Matias Fernandez frá Chile.

Villareal hefur gengið illa á leiktíðinni og situr í ellefta sæti spænsku deildarinnar en liðið hefur ekki náð að fylgja eftir góðum árangri frá því á síðasta tímabili þegar það komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.