Fotbolti.net
25.01.07 - 06:00
Andri Fannar Stefánsson

Sheffield United fær tvo leikmenn (Staðfest)

Warnock að fá liðsstyrk.

Warnock að fá liðsstyrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hafa gengið frá kaupum á Ahmed Fathi og Luton Shelton en Neil Warnock hafði klárað kaupin í síðustu viku en nú hafa þeir fengið atvinnuleyfi.
Shelton sem er framherji frá Jamaíku hefur skrifað undir samning út 2010 og kostar hann úrvalsdeildarliðið 1,85 milljónir punda. Fathi er með jafn langan samning og kemur hann á 700,000 pund frá Ismaily í Egyptalandi.

Shelton og Fathi gætu spilað fyrstu leiki sína gegn Fulham í úrvalsdeildinni en það er næsti leikur Sheffield. Warnock hefur verið duglegur í janúar og fengið til liðs við sig fimm leikmenn, þá Matthew Kilgallon, Mamadou Seck og Jon Stead og svo Fathi og Shelton.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.