25.01.07 - 16:05
Magnús Már Einarsson
Lee Dong-Gook til Middlesbrough (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur gengið frá kaupunum á Lee Dong-Gook framherja Pohang Steelers í Suður-Kóreu eftir að þessi 27 ára gamli leikmaður fékk atvinnuleyfi í Englandi.
Dong-Gook sem er fyrrum leikmaður Werder Bremen hafði ekki leikið 75% landsleikja Suður-Kóreu á síðastas ári en hann missti af mörgum þeirra vegna meiðsla, þar á meðal Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi.
Alls hefur Dong-Gook skorað 22 mörk í 64 landsleikjum fyrir Suður-Kóreumenn.
Alls hefur Dong-Gook skorað 22 mörk í 64 landsleikjum fyrir Suður-Kóreumenn.
