Fotbolti.net
25.02.08 - 15:10
Magnús Már Einarsson

Dynamo Moskva kaupir Kerzhakov frá Sevilla (Staðfest)

Dynamo Moskva kaupir Kerzhakov frá Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Dynamo Moskva hefur keypt framherjann Alexander Kerzhakov frá Sevilla.
Talið er að kaupverðið sé á milli sjö og átta milljónir evra.

Kerzhakov, sem er 25 ára gamall, kom til Sevilla frá Zenit St Pétursburg í desember árið 2006 en náði aldrei að festa sig almennilega í sessi hjá félaginu.

Hann getur strax byrjað að leika með Dynamo Moskvu og vonast til að sanna sig til að fá sæti í landsliðshópi Rússa fyrir EM í sumar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.