Fotbolti.net
25.02.26 - 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjubikarinn: Leiknir sendi Blika á botn riðilsins

Axel Freyr Harðarson í leiknum.

Axel Freyr Harðarson í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Breiðablik 2-3 Leiknir
0-1 Þorsteinn Emil Jónsson ('42 )
0-2 Viktor Andri Pétursson ('45 )
0-3 Axel Freyr Harðarson ('77 )
1-3 Kristinn Steindórsson ('90 )
2-3 Arnór Gauti Jónsson ('90 )
Breiðablik fékk Leikni í heimsókn í riðli fjögur í Lengjubikarnum í kvöld.

Gestirnir náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Þorsteinn Emil Jónsson skoraði. Viktor Andri Pétursson bætti síðan öðru markinu við áður en flautað var til hálfleiks.

Axel Freyr Harðarson kom síðan Leikni þremur mörkum yfir. Blikar bitu frá sér í blálokin þegarr Kristinn Steindórsson og Arnór Gauti Jónsson skoruðu sitt markið hvor.

Leiknir sendi Breiðablik á botn riðilsins með þessum sigri en liðin eru bæði með þrjú stig eftir fjórar umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.